Starfsdagur - stjórnendur starfa við hlið framlínufólks Stjórnendur ISS eftir vel heppnaðan starfsdag. Bragi Bragason, fjármálastjóri ISS var mættur til starfa í stóreldhúsi ISS að Vatnagörðum kl. 06.00. Björk og Björg Ágústa Björgólfsdóttir starfsmaður í Ármúlaskóla Bragi ánægður eftir erfiði dagsins Björk Baldvinsdóttir viðskipta stjóri var komin kl. 08.00 í Ármúlaskóla og undirbjó hádegismatinn ásamt því að afgreiða nemendur skólans. Halldór með ryksuguna góðu Hólmfríður og Eva Rún í Kaffi Garði Halldór Kr. Jónsson, sölu- og markaðsstjóri byrjaði kl. 08.00 í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni og tók til við ræstingu. Hólmfríður G. Einarsdóttir gæðastjóri hóf störf snemma í Kaffi Garði í húsasmiðjunni og var tilbúin fyrir hádegisösina. Guðmundur og Jolanta Kropiewcka starfsmaður í Borgartúni 21 Guðmundur Elías Níelsson, sviðsstjóri veitingasviðs skar pizzur ofan í hundruðir manna í Borgartúni 21. Ívar á fullu í bónleysingu Sigríður Héðinsdóttir starfsmannastjóri ræsti í Marel. Með henni á myndinni er Jónína Gunnarsdóttir, þjónustufulltrúi í Marel. Ívar Harðarson sviðsstjóri ræstinga hjá ISS mætti snemma morguns í Íslandsbanka Kirkjusandi og bónhreinsaði stigaganginn. Það fór vel á með Guðmundi Guðmundssyni forstjóra og Sigrúnu Gunnarsdóttur í eldhúsi Heklu.
Halið niður PDF-skjali